Framtíðin með forritunarkennslu

 

iPad og forritun í kennslu – grein í Mannlíf 18. janúar 2018


Forritun er stór hluti af okkar daglegu lífi, hvort sem við erum að senda tölvupósta, taka ljósmynd á snjallsíma, borga með korti, horfa á Netflix eða taka strætó, þá eru þetta allt athafnir sem krefjast forritunar á einhvern hátt. Margir telja að störf framtíðarinnar komi til með að byggja í meira mæli á stafrænu læsi og forritunarþekkingu. Jafnframt er því haldið fram af World Economic Forum að 65% starfa framtíðar séu ekki ennþá til og að flest þeirra komi til með að tengist tækni á einhvern hátt. Því er mikilvægt að skólar séu samferða þessari þróun með markvissri forritunarkennslu fyrir nemendur. Ávinningurinn af forritunarkennslu er mikill. Að þekkja og nota forritunartungumál er ákveðið læsi á stafrænni öld. Nemendur færast þannig úr því að vera neytendur tækninnar eða notaðir af henni, yfir í að vera notendur og nýta sér tæknina til sköpunar.

IMG_0492 2

Með því að læra forritun geta nemendur skapað sín eigin hugarfóstur, gert hugsanir sínar að gagnvirkum raunveruleika og er það í rauninni einungis þeirra eigið ímyndunarafl sem er hindrun í þeirri sköpun. Þegar unnið er með forritun þjálfast bæði rökhugsun og lausnarmiðuð hugsun á annan hátt heldur en með stærðfræði. Það er vegna þess að nemendur sjá afraksturinn á gagnvirkan hátt um leið og þeir forrita og eitthvað sýnilegt verður til. Nemendur þjálfast í samvinnu og þolinmæði því það að leita lausna saman og sýna þrautseigju lærist vel með forritun. Nemendur læra að hugsa leiðina að takmarkinu í litlum skrefum, brjóta vandamálin í minni einingar og finna lausnir á hverri þraut með gagnrýnni hugsun. Leikni á þessu sviði gefur nemendum færni sem getur orðið þeim mikilvæg í framtíðinni.
Forritun er góð leið til að læra af mistökum, því leiðir að markmiðinu geta verið margar og alls ekki sjálfgefið að ná réttri leið í fyrstu tilraun. Þá þarf að greina mistökin, læra af þeim og gera betur. Oft ná þeir nemendur sem ekki finna sig jafn vel í öðrum bóklegum námsgreinum góðum tökum á forritun og þannig getur hún aukið sjálfstraust og almennan áhuga á námi hjá þeim einstaklingum. Markmiðið með forritunarkennslu er ekki að allir verði forritarar, heldur að allir fái tækifæri til að kynnast forritun. Þannig er verið að þjálfa margþætta færni sem nýtist nemendum okkar í framtíðinni. Alveg eins og allir þurfa að kynnast heimilisfræði, smíðum og fleiri greinum í grunnskóla.

IMG_0576

Sumir gætu talið það óraunhæft að hinn almenni kennari, sem ekki hefur forritunarmenntun geti kennt forritun í grunnskólum. En með þjálfun, aðgengi að góðu kennsluefni og réttu hugarfari geta allir kennarar kennt fyrstu skref í forritun. Það er einfaldlega vegna þess að kennarar eru upp til hópa mjög góðir í að tileinka sér nýja þekkingu og deila henni áfram. Hægt er að samþætta forritun við önnur fög, hvort sem það er stærðfræði, tónlist eða tungumálakennsla og að auki gæti forritun verið áhugavert val í skapandi skilum á verkefnum.

Mikil vakning er varðandi forritunarkennslu bæði erlendis og hérlendis og er margt í boði sem hægt er að nýta sér í kennslu, bæði öpp og ýmis tækjabúnaður.
Apple hefur gefið út frítt forritunarapp fyrir iOS tæki, sem kallast Swift Playgrounds, en það nýtur mikilla vinsælda bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Swift Playgrounds er eins og rafræn bók með mismunandi verkefnum sem þarf að leysa. Það er hannað til að vera byrjendavænt og það krefst engrar forritunarþekkingar af nemendum.  Þannig er það frábær leið til að byrja að læra forritun. Verkefnin í appinu eru auðveld til að byrja með en þyngjast með góðum stíganda. Appið er gagnvirkt þannig að nemendur sjá eitthvað gerast á skjánum um leið og þeir keyra kóðann sinn sem gerir verkefnin lifandi. Swift Playgrounds er hægt að tengja gagnauknum veruleika og ýmsum aukahlutum sem margir skólar hafa nú aðgang að. Til dæmis Sphero kúlum, drónum og forritanlegum vélmennum.

IMG_0508 3.JPG

Það koma reglulega inn ný og spennandi verkefni í Swift appið svo áhugasamir nemendur verða ekki verkefnalausir. Apple leggur mikla áherslu á að vinna með þann raunveruleika sem nemendur tengja við þannig að verkefnin séu áhugaverð. Þegar nemendur hafa náð góðri færni í kóðun geta þeir sjálfir hannað sín verkefni frá grunni í  appinu. Í Swift Playgrounds geta nemendur valið forritunarskipanir með því að smella á þær. Þannig er komið í veg fyrir innsláttarvillur sem hindra að kóðinn virki og getur tekið langan tíma að laga. Þetta er frábær eiginleiki þegar byrjað er í forritun en jafnframt er hægt að slá inn kóða sjálfur þegar leikninni hefur verið náð.
Forritunarmál er eins og tungumál með mörgum mállýskum, um leið og nemandi hefur fengið þjálfun í einu forritunarmáli þá er hann fljótur að ná tileinka sér önnur. Mörg vinsæl öpp eru skrifuð í Swift kóða frá Apple þó það sé ekki gamalt forritunarmál. Þannig að Swift er fullkomlega samkeppnishæft forritunarmál sem er öllum aðgengilegt og býr nemendur undir þeirra framtíð.

 

Screenshot 2019-01-18 at 12.53.46.png

Greinin birtist í Mannlíf þann 18. janúar 2018 – hægt er að sjá hana í heild sinni hér: https://mannlif.is/tolublad/mannlif-3-tolublad-2019/?fbclid=IwAR1C5E2vbLFcUtAq2seNC8or_dtTtD6vcHXKKZpWyqK_zCq6TF4MKS3jtro

Comments

Leave a Reply